Það fer nú óneitanlega svolítið um mann

Já fréttirnar héðan frá okkur eru ekkert svo alltof góðar.

Þegar ég var í vinnunni hringdi ég í Atla félaga sem var að láta sér leiðast einn á Kastrup og sagði hann mér þá að honum hefði heyrst í fréttunum að maður hefði verið myrtur í hverfinu hjá mér í gær Gasp

Ég hringdi svo í Guðrúnu til að athuga hvort hún hefði heyrt eitthvað um þetta og var hún þá búin að sjá þetta í sjónvarpinu og viti menn.Þetta gerðist ca.1,5 km frá okkur og gerðist um kl.21:00 í gær.

Þrír hettuklæddir menn sem gerðu sig skiljanlega á ensku fóru inn til hjónanna,bundu konuna í einu herberginu ,fóru með manninn í annað herbergi og bundu hann þar,opnuðu peningaskápinn sem var víst einhver slatti af peningum vegna þess að þessi kall braskaði helling með bíla og var einungis með  reiðufé í sínum fórum.

Þegar þeir hinsvegar eru búnir að ræna þau taka þeir kylfu sem þeir voru með og slá í hausinn á kallinum með þeim afleiðingum að drepa hann.

Maður skilur þetta ekki alveg og ekki laust við að maður sé í smá sjokki eftir þetta.

Núna eru þessir menn hundeltir og ekki nóg með að vera búnir að stela þá nældu þeir sér að manni sýnist í algjörlega tilefnislausa morðákæru.

 

Fróðleiksmoli dagsinns: ca.11% af jarðarbúum brúka vinstri hönd og þeir sem það gera eru hneygðari til að vera með kynvillu eða aðra geðveilu  Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Isssss ....... það var líka laminn einn til bana hérna í bænum um helgina.... og sá tók ekki krónu fyrir !!! Pikkí þessir dönsku glæpamenn... þurfa að vera 3 og fá borgað summu fyrir.... okkar fékk bara í glas og murkaði lífið úr gestgjafanum í þakklætisskyni     ....ekkert vesen og hringdi svo sjálfur í lögguna svo þeir væru ekki að eyða tíma í að leita að honum.....  Íslenskt : Best í heimi !!!

Óskar (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 20:28

2 identicon

sæll kall....    ég skil vel að þú sért pirraður á þessu djöf..bloggi.     þetta er alltaf eitthvað að klikka..    en er þetta síðan sem þú kemur til með að brúka í framtíðinni?

 er þá meirihluti vinstri kanntmanna í fótbolta og hægri skyttna í handbolta eitthvað kynvilltir.. ??   best að forðast þessar hliðar íþróttanna... :) heh

hannes (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 09:36

3 identicon

Jahá þetta er agalegt að heyra :=0 veit eiginlega ekki hvað ég á að segja en farið þig bara varlega sko :) kv Alda Besta Frænka ....

Alda (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 10:43

4 identicon

Ef ég næði í rassg.... á þér núna myndi þér svíða sárt.....

Hvaðan í andsk... færðu þessa grillu í höfuðið að örvhentir séu kynvilltir holy cow hvað þú ert í djúpum sk..

En það sem er sagt um okkur þetta frábæra fólk er að við erum hjartahlý, þolinmóð og með eindæmum listræn = sem sagt ég

Áslaug uppáhalds... (IP-tala skráð) 10.10.2007 kl. 18:48

5 identicon

ljót að heyra með bófana í Danaveldi..... best að þið komið bara heim sem fyrst....

Annars er gaman að heyra að það sé dama í "egginu". Verður væntanlega flott eins og stóra systir.

En ég er með blog.central og lendi ekki oft í vandræðum... þetta er greinilega bara eitthvað persónulegt út í þig .... karma og svoleiðis....hahahha

ein að missa sig á "köllunum"   

Hulda (IP-tala skráð) 11.10.2007 kl. 13:57

6 identicon

Þetta með vinstri höndina ha........ef maður er örvhentur en notar samt hægri.....er maður þá bara hálf-kyn-villtur, eða bara ekki kominn út úr skápnum. - Kannski bara alveg lost

gamli (IP-tala skráð) 19.10.2007 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband